Homepage

Pantaðu hér
Brauð Bakkelsi Meira Okkar vörur
Brauð-fram-af-brauði Til að losna við brauðið hóf Kimi að kíkja á eldri borgarana í þorpinu í kaffi og spjall á íslensku og gaf hún þeim brauðhleif í staðinn. Fljótlega vildu þau byrja að borga fyrir brauðið. Eitt leiddi því af öðru og brátt spurðist út að súrdeigsbrauð væri á boðstólnum á Stöðvarfirði. Kaffistundirnar urðu fleiri, brauðgerðin jókst, og íslenskan hjá Kimi batnaði þar meðfram. Með aukinni eftirspurn stóð Kimi á krossgötum þar sem gamalt bjargráð var nú á barmi einyrkjaframleiðslu. Nú var lag að stökkva en ekki hrökkva og Brauðdagar urðu til. Nú eru flestir dagar brauðdagar og við elskum þá (já, Eva líka)! Við höfum hlotið styrk frá ýmsum bakhjörlum; Fjarðabyggð gaf Brauðdögum aðgang að löglegu eldhúsi til að byrja að stækka, og Austurbrú og Brothættar byggðir hafa verið okkur óendanlegur stuðningur, ráðgjöf og úthlutað okkur styrkjum. Steinasafn Petru var fyrsta fyrirtækið sem gekk í samstarf við okkur fyrir framleiðslu fyrir Kaffi Sunnó. Síðast en ekki síst má nefna stuðning Stöðfirðinga, sem hefur verið okkur ómetanlegur. Árið 2025 fengu Brauðdagar að leigja eigið eldhús hjá Byggðastofnun, og í gegnum ýmsa samstarfsaðila, höfum við getað stækkað viku fram af viku en þessir aðilar eru Kaffibrennslan Kvörn, Hús handanna, Jurtadís og Björt sem eru afhendingarstaðirnir okkar. Með öllum þessum stuðningi höfum við getað ráðið fólk í tilfallandi vinnu og nýlega gekk Michael, æskuvinur Evu, til liðs við Brauðdaga sem markaðósstjóri. Almáttugur hvað við þurfum á honum að halda! Er brauðdagur í dag? Við heitum Kimi og Eva og við búum á Stöðvarfirði. Kimi er frá Bretlandi en Eva er íslensk. Kimi hafði upphaflega flust til fjarðarins 2017 en ílengst síðar í Reykjavík eftir nám í Listaháskóla Íslands og atvinnumennsku í uppistandi. Eva bjó erlendis en fluttist heim í desember 2019 til að hefja doktorsnám í heilsumannfræði við Háskóla Íslands. Á innan við sólarhring eftir að hún flutti heim kynntist hún Kimi; þær giftu sig 2021 og fluttu til Stöðvarfjarðar í september 2022 og varð þá langþráður draumur Kimi um að snúa aftur loks að veruleika. Á byrjunamánuðum 2023 fór heilsu Kimi að hraka sem endaði með kulnun og var Kimi óvinnufær um tíma. Til að forðast eirðarleysi ákvað hún að endurvekja gamalt áhugamál og þar með hófst brauðbakstur – og mikið af honum. Þegar Kimi leið illa þá bakaði hún og brauð framaf brauði, bakaði Kimi sig í gegnum kulnunina. Eva sá að Kimi leið ekki vel en vissi ekki alltaf hvernig hún átti að nálgast umræðuefnið um líðan, svo spurningin varð oftar en ekki “er brauðdagur í dag?”. Sumir dagar voru brauðdagar, reyndar voru þeir flestir brauðdagar og bratt fylltist eldhúsið af súrdeigsbrauði. Hængurinn er þó sá að Eva er með glútenofnæmi og takmörk eru fyrir því hversu mikið brauð einn einstaklingur getur neytt sér til matar. Brauðið þurfti því að finna sér annan samastað. Hver erum við Kimi er hjarta (og hendur) Brauðdaga: Deigstelpa, listakona, fyrrverandi uppistandari og manneskja með óseðjandi útrásarþörf fyrir sköpunargáfuna. Eva er eiginkonan, doktorinn og allsherjarnörðið: Húneltir kvittanir frá Kimi og heldur utan um reksturinn. Ótrúlegt en satt, þá getur ansi mikil ringulreið fylgt smárekstri á stað sem hefur einungis tvær gangbrautir og engin umferðarljós. Michael er markaðs- og samfélagsmiðlastjóri Brauðdaga. Hann býr ekki á Stöðvarfirði en er ættaður frá Breiðdalsvík, sem við látum nægja að sinni, og er ástæðan fyrir því að netmiðlar Brauðdaga líta ekki út fyrir að hafa staðnað árið 2007. eigandi myndar art bicnick Frá fimm brauðhleifum í átta byggðakjarna Það sem byrjaði sem heilsubót og bjárgráð er nú orðið að rekstri sem sendir í átta byggðakjarna víðsvegar um Austfirði. Til að halda gæðum í hámarki höldum við lítinn kjarna af vörum en Kimi fær alltaf einhverja hugdettu og því er alltaf eitthvað nýtt á boðstólnum í hverri viku. Hafðu því augun á okkur vikulega, því við vitum ekki hvenær við bjóðum upp á það næst! Allt er handunnið og öllu er gefinn sá tími sem nosturþað þarfnast. Engu ferli er flýtt og engar leiðir eru styttar– súrdeigsvörurnar okkar eru 100%. Skoðaðu endilega seðilinn okkar, kíktu á sendingarleiðirnar og kynntu þér samstarfsaðila okkar. Hafðu endilega samband ef eitthvað er – við tökumöllum fyrirspurnum fagnandi, sérstaklega um ofnæmisvalda. Um Stöðvarfjörð Stöðvarfjörður er þorp í suðurfjörðum Austurlands. Staðurinn er mjög lítill, einungis um 180-200 íbúar búa þar en fjörðurinn okkar er einstaklega fallegur með dramatískt álit Súlnanna sem drottna yfir okkur hinum megin við fjörðinn. Fjallstindurinn Súlurnar eru einmitt þær sem urðu innblástur af einkennismerki Brauðdaga, þar sem súrdeigsbrauðið kíkir brosandi yfir þær meðfram síðdegis sólinni. Margur er knár þótt hann sé smár og því er margt um aðvera á Stöðvarfirði og andinn í þorpinu er upplífgandi ogskemmtilegur. Hér vilja Brauðdagar vera og hvergi annarsstaðar! Ef þú trúir okkur ekki, kíktu þá á nýuppfærða heimasíðu bæjarins: stodvarfjordur.is! Hér spyr ekki að því hvort dagurinn í dag sé brauðdagur því á Stöðvarfirði eru allir dagar brauðdagar. Smjattaðu á sögunni
Stöðvarfjörður - Kaffibrennslan Kvörn Fáskrúðsfjörður - Jurtadís Reyðarfjörður - Heimsending Eskifjörður - í vinnslu Neskaupstaður - Björt verslun Egilsstaðir - Hús Handanna Breiðdalsvík - Heimsending Djúpivogur - Heimsending Afhendingarstaðir Sendingarleiðirnar okkar Við sendum á Austurlandi! Hægt er að panta og sækja á völdum stöðum og eru leiðirnar eftirfarandi: ÞRIÐJUDAGAR: Stöðvarfjörður, Fáskrúðsfjörður, Egilsstaðir MIÐVIKUDAGAR: Reyðarfjörður, Eskifjörður, Neskaupstaður FIMMTUDAGAR: Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík, Djúpivogur
Veisluþjónusta Við getum séð um að brauðumbæta veislur og viðburði af ýmsum stærðum og gerðum. Endilega hafið samband! ✻
Pizzakvöld Við vinnum hörðum höndum að því að setja upp ekta flatbökuþjónustu á föstudagskvöldum á Stöðvarfirði þar sem hægt verður a ð panta og sækja. Kemur fljótlega svo hafið auga með þessu svæði! ✻
með stuðningi frá: